Fotbolti.net
03.04.26 - 19:30
Kári Snorrason

Óvíst hvort að Ari komi í þessum glugga - Þjálfarabreyting og fór beint í liðið

Óvíst hvort að Ari komi í þessum glugga - Þjálfarabreyting og fór beint í liðið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari Leifsson spilaði sinn fyrsta leik síðan í lok ágústmánaðar fyrir Kolding er liðið gerði 1-1 jafntefli við Esbjerg í dönsku B-deildinni fyrr í dag.

Greint var frá því á Fótbolta.net fyrir nokkrum vikum að Ari væri á heimleið og gæti náð fyrsta leik í Bestu deildinni. Nú ríkir óvissa með hvort að liðið sé tilbúið til að láta leikmanninn fara áður en samningur hans rennur út í sumar.
Ari Leifs er á leið heim - Gæti náð fyrsta leik
TENGT EFNI

Ari Leifs er á leið heim - Gæti náð fyrsta leik

Þjálfaraskipti voru hjá félaginu rétt fyrir mánaðarmót en danski stjórinn Jonas Kamper tók við af Spánverjanum Albert Rudé, sem hafði geymt Ara úti í kuldanum.

Skyldi hann vera áfram hjá Kolding út samninginn þá gæti hann ekki komið heim fyrr en í sumarglugganum sem opnar 16. júlí. Núverandi gluggi lokar 29. apríl.

Valur hafði verið í viðræðum við Kolding um að fá leikmanninn og sagði Hermann Hreiðarsson í viðtali við Fótbolta.net á dögunum að félagið væri virkilega áhugasamt um að sækja Ara í sínar raðir.Þá var greint frá því í Dr. Football í síðasta mánuði að bæði KA og Breiðablik höfðu jafnframt boðið Ara samning.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.