17.10.26 - 17:03
Ívan Guðjón Baldursson
Emi Martínez fékk heilahristing

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Emiliano Martínez var borinn af velli í 0-2 sigri Chelsea gegn Everton í ensku úrvalsdeildinni í dag.

TENGT EFNI
England: Áfall fyrir Chelsea þrátt fyrir góðan sigur
Martínez lenti í harkalegu samstuði við Jarrad Branthwaite og var mönnum strax ljóst að markvörðurinn þaulreyndi gæti ekki haldið leik áfram.
Eftir lokaflautið staðfesti Xabi Alonso þjálfari að farið hafi verið með Martínez á spítala til að ganga úr skugga um alvarleika áverkanna.
„Það eina sem ég veit er að hann fékk heilahristing," sagði Alonso að leikslokum. „Hann var með meðvitund þegar hann yfirgaf leikvanginn og við vonum að þetta sé ekkert alvarlegt. Eina sem við getum gert er að bíða eftir niðurstöðum."
Mögulegt er að Martínez missi af næstu þremur leikjum Chelsea sem eru afar spennandi slagir gegn Tottenham, Liverpool og Manchester United.
Bandaríkjamaðurinn efnilegi Mike Penders kom inn af bekknum til að fylla í skarðið og mun byrja næstu leiki.