Enrique efstur á lista Man Utd - Hættir Pep hjá City í sumar? - Man Utd ætlar ekki að lána Rashford aftur til Barca
   fös 20. mars 2026 21:30
Ívan Guðjón Baldursson
Ari Leifs er á leið heim - Gæti náð fyrsta leik
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er Ari Leifsson á leið heim í íslenska boltann eftir sex ár í atvinnumennsku.

Ari er 27 ára miðvörður með fjóra A-landsleiki að baki. Hann er samningsbundinn Kolding í næstefstu deild í Danmörku en virðist ekki vera inni í myndinni hjá þjálfara liðsins þar sem hann er aðeins búinn að spila tvo deildarleiki á tímabilinu.

Ari lék með Strömsgodset í efstu deild í Noregi áður en hann skipti yfir til Danmerkur.

Besta deildin er sífellt að verða sterkari og sterkari og verður áhugavert að fylgjast með því hjá hvaða félagsliði Ari endar. Hann er samningsbundinn Kolding til sumars en samkvæmt heimildum gæti hann komið til Íslands fyrir upphaf íslenska deildartímabilsins í apríl.

Ari var orðaður við bæði Breiðablik og KA í síðustu viku en ekki er útilokað að fleiri félög séu með í kapphlaupinu um að semja við þennan öfluga leikmann.

   12.03.2026 12:47
Segir að KA og Breiðablik hafi boðið Ara samning

Athugasemdir
banner
banner