Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   mán 03. maí 2021 12:58
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Clarissa Larisey til Vals (Staðfest)
Mynd: Valur
Íslandsmeistarakandídatarnir í Val hafa fengið til sín liðsstyrk fyrir komandi átök í Pepsi Max-deild kvenna.

Sóknarmaðurinn Clarissa Larisey er kominn til félagsins en hún hefur leikið með háskólaliði í Memphis að undanförnu.

Larisey er kanadísk og er sögð vera fjölhæfur leikmaður sem geti leyst margar stöður framarlega á vellijnum. Hún hefur lokið sóttkví á Íslandi og gæti tekið þátt í fyrstu umferð Íslandsmótsins.

„Við bjóðum Clarissu velkomna á Hlíðarenda!" segir í tilkynningu Vals.

Valur mætir Stjörnunni í fyrstu umferð á miðvikudag.
Athugasemdir
banner
banner
banner