Mainz 1 - 1 Hertha
0-1 Lucas Tousart ('36 )
1-1 Philipp Mwene ('40 )
0-1 Lucas Tousart ('36 )
1-1 Philipp Mwene ('40 )
Mainz og Hertha Berlín gerðu 1-1 jafntefli í þýsku deildinni í kvöld en þetta voru súr úrslit fyrir bæði lið sem berjast við að halda sér uppi í deildinni.
Franski miðjumaðurinn Lucas Tousart kom Herthu yfir á 36. mínútu en Phillipp Mwene jafnaði metin aðeins fjórum mínútum síðar.
Með þessu jafntefli tókst Mainz að koma sér í ágætis stöðu fyrir síðustu þrjá leikina en liðið er nú sex stigum frá fallsæti.
Hertha er á meðan í næst neðsta sæti deildarinnar með 27 stig, þremur stigum frá öruggu sæti en liðið á tvo leiki til góða.
Athugasemdir