Fotbolti.net
03.06.16 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Leicester kaupir markvörð (Staðfest)

Leicester kaupir markvörð (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ensku meistararnir í Leicester hafa keypt markvörðinn Ron-Robert Zieler frá Hannover í Þýskalandi. Hinn 27 ára gamli Zieler á yfir 200 leiki að baki á ferli sínum með Hannover.
„Það er frábært að koma til Leicester eftir svona frábært tímabil,\" sagði Zieler.

Zieler krotaði undir fjögurra ára samning en hann þekkir til á Englandi eftir að hafa áður verið í unglingaliði Manchester United.

Zieler var hluti af þýska landsliðshópnum sem vann HM í Brasilíu árið 2014.

Hjá Leicester mun hann berjast við Kapser Schmeichel um markvarðarstöðuna.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.