Fotbolti.net
03.06.16 - 21:11
Ívan Guðjón Baldursson

Marc Bartra til Dortmund (Staðfest)

Bartra er í landsliðshóp Spánverja sem fer á EM.

Bartra er í landsliðshóp Spánverja sem fer á EM.

Canon

Mynd: Getty Images

Kvennalandslið
Hinn 25 ára gamli Marc Bartra er búinn að skrifa undir fjögurra ára samning við Borussia Dortmund.

Bartra kemur til félagsins frá Barcelona og á að keppast um að fylla í skarð Mats Hummels sem var seldur til FC Bayern.
Bartra spilaði afar lítið fyrir Börsunga á nýliðnu tímabili og vegna þess var öðrum félögum frjálst að virkja sérstakt kaupákvæði í samningi varnarmannsins með því að bjóða 8 milljónir evra í hann.

Dortmund var ekki lengi að nýta sér ákvæðið en Bartra á 59 deildarleiki að baki fyrir Barca og 10 landsleiki fyrir Spán.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.