Saul Niguez, miðjumaður Atletico Madrid, tilkynnti í vikunni að hann myndi kynna nýtt félag sitt í dag.
Saul hefur verið sterklega orðaður við Manchester United en hann plataði alla með yfirlýsingum sínum í vikunni.
Miðjumaðurinn öflugi er sjálfur ekki að skipta um félag heldur er hann að stofna nýtt félag í Elche sem heitir Club Costa City.

Um er að ræða akademíu sem Saul og bróðir hans hafa stofnað en þeir ætla að búa til lið úr 30 litlum liðum sem eru í Elche.
Club Costa City á að verða öflugt unglingalið í öllum aldursflokkum en Saul er mjög spenntur fyrir verkefninu.
Athugasemdir