15.09.26 - 22:24
Kári Snorrason
Rúnar: Hvað á ég að segja annað?
Auglýsing

Ósáttur með frammistöðu liðsins í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Framarar í baráttu við KR um 2. sætið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Í þriðja sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ósáttur með frammistöðu liðsins í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Ég er mjög óánægður, mjög svo. Við þurfum að kryfja af hverju við mætum svona til leiks,“ sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, eftir 3-1 tap liðsins gegn Breiðabliki á Lambhagavellinum fyrr í kvöld.
Lestu um leikinn: Fram 1 - 3 Breiðablik
„Við áttum ekkert meira skilið úr fyrri hálfleiknum. Hefði verið betra að ganga til búningsklefa 1-0 undir. Við vorum arfaslakir, menn voru á jogginu og engin ákefð í okkar leik. Við komum ekki inn á völlinn eins og ég vil sjá okkur gera. Við lögumst í upphafi seinni hálfleiks og ég hélt að við værum að fara snúa þessu við en náðum ekki að fylgja þessu nægilega vel eftir,“ sagði Rúnar jafnframt.
Baráttan um annað sætið
Víkingar eru með níu fingur á titlinum og geta tryggt Íslandsmeistaratitilinn gegn KR næstkomandi laugardag.
Fram er í baráttu við KR um annað sæti deildarinnar en það tryggir liðum beint í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
„Við erum að fara vinna hana, það er bara þannig. Við ætlum að vera í öðru sæti, hvað á ég að segja annað? KR er búið að spila skemmtilegan fótbolta í sumar. Skora mikið og fá á sig mikið, kannski annað sem ég er ósáttur við - við höfum fengið á okkur allt of mikið af mörkum í sumar. Við þurfum að laga varnarleikinn og ýmislegt annað fyrir næsta leik,“ sagði Rúnar en næsti leikur liðsins er næstkomandi sunnudag gegn Keflavík.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.
Baráttan um annað sætið
Víkingar eru með níu fingur á titlinum og geta tryggt Íslandsmeistaratitilinn gegn KR næstkomandi laugardag.
Fram er í baráttu við KR um annað sæti deildarinnar en það tryggir liðum beint í 2. umferð í forkeppni Sambandsdeildarinnar.
„Við erum að fara vinna hana, það er bara þannig. Við ætlum að vera í öðru sæti, hvað á ég að segja annað? KR er búið að spila skemmtilegan fótbolta í sumar. Skora mikið og fá á sig mikið, kannski annað sem ég er ósáttur við - við höfum fengið á okkur allt of mikið af mörkum í sumar. Við þurfum að laga varnarleikinn og ýmislegt annað fyrir næsta leik,“ sagði Rúnar en næsti leikur liðsins er næstkomandi sunnudag gegn Keflavík.
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan.

Framarar í baráttu við KR um 2. sætið.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Í þriðja sæti.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 23 | +49 | 56 |
| 2 | KR | 23 | +29 | 47 |
| 3 | Fram | 23 | +12 | 45 |
| 4 | Breiðablik | 23 | +4 | 33 |
| 5 | ÍA | 23 | -6 | 30 |
| 6 | Keflavík | 23 | -8 | 28 |
