Fotbolti.net
15.09.26 - 23:02
Brynjar Ingi Erluson

Þungt tap hjá Eyþóri - Tómas með magakveisu

Eyþór Martin lék í stóru tapi

Eyþór Martin lék í stóru tapi

Canon

Mynd: Motherwell

Norsk-íslenski framherjinn Eyþór Martin Björgólfsson kom við sögu í 4-0 tapi Motherwell gegn Aberdeen í skosku úrvalsdeildinni, en Tómas Bent Magnússon var ekki með Hearts vegna magakveisu.
Eyþór Martin er 26 ára gamall, uppalinn í Noregi en á íslenskan föður.

Hann var valinn af Seattle Sounders í nýliðavali MLS-deildarinnar árið 2023 eftir góðan árangur í háskólaboltanum, en fór þaðan til Noregs þar sem hann lék með Moss og Start áður en hann sló í gegn hjá Umeå í Svíþjóð.

Motherwell fékk hann til sín í byrjun síðasta árs og er hann nú að vinna sig aftur inn í liðið eftir að hafa glímt við meiðsli. Eyþór kom inn af bekknum gegn Aberdeen í kvöld en Motherwell hefur ekki tekist að skora í tveimur leikjum í röð og því gæti farið að styttast í að hann fái tækifæri í byrjunarliðinu.

Motherwell er í 5. sæti með átta stig eftir sex leiki.

Tómas Bent Magnússon gat ekki verið með Hearts sem tapaði 2-1 fyrir Falkirk. Hann hefur glímt við magakveisu síðustu daga og var því ekki klár í slaginn í kvöld.

Tómas verður þó líklega orðinn klár fyrir helgina þegar Hearts heimsækir Kilmarnock.

Hearts er í 3. sæti með tólf stig, sex stigum frá toppnum.
Tómas Bent var ekki með vegna veikinda

Tómas Bent var ekki með vegna veikinda

Canon

Mynd: Hearts

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.