03.06.21 - 17:03
Elvar Geir Magnússon
Koeman verður áfram með Barcelona (Staðfest)

Ronald Koeman, stjóri Barcelona.

Mynd: Getty Images

Ronald Koeman, stjóri Barcelona.

Mynd: Getty Images
Íþróttafréttamaðurinn Fabrizio Romano segir það frágengið að Hollendingurinn Ronald Koeman verði áfram stjóri Barcelona á næsta tímabili.
Uppfært: Þetta hefur nú verið staðfest.
Börsungar höfnuðu í þriðja sæti í La Liga en forseti félagsins, Joan Laporta, hefur víst ákveðið að áfram verði treyst á Koeman.
Búist er við því að Lionel Messi skrifi undir nýjan samning en líkurnar á því jukust þegar Sergio Aguero gekk í raðir félagsins.
Þá er talið að Hollendingurinn Memphis Depay komi á frjálsri sölu frá Lyon líkt og Georginio Wijnaldum frá Liverpool.

Ronald Koeman STAYS at Barcelona, confirmed. Koeman agents were ‘confident’ since one week and now the agreement is imminent. Joan Laporta decided to continue with Koeman as manager next season. Here we go. 🔵🔴🇳🇱 #FCB #Barcelona #Koeman
— Fabrizio Romano (@FabrizioRomano) June 3, 2021