„Þetta var mjög erfiður leikur af okkar hálfu,'' segir Alfreð Elías Jóhannsson, þjálfari Grindavík, eftir 1-1 jafntefli gegn Kórdrengjum sem fór fram á Framvellinum í kvöld.
Lestu um leikinn: Kórdrengir 1 - 1 Grindavík
„Kórdrengir spiluðu þennan leik vel og við vorum smá undir í baráttunni. Skorum gott mark í fyrri hálfleik, hálfleikur sem var fínn af okkar hálfu, þótt að þeir megi alveg halda boltanum eins mikið og þeir geta á meðan þeir skora ekki,''
„Þetta gekk nokkuð vel, síðan skora þeir mjög gott mark í seinni hálfleik og þá lág smá á okkur í 70. mínútur. Síðan var þetta orðið fram og tilbaka í restina,''
„Þeir skoruðu 2 mörk sem eru dæmd af. Klárlega brot á markmanninum mínum úr horni og síðan var dæmd rangstæða sem mér skilst hafa verið rétt líka.''
Kristófer Páll skorar mark Grindavíkur úr aukaspyrnu, hann er síðan tekinn útaf 59. mínútu leiksins.
„Hann var aðeins byrjaður að finna til í mjöðminni. Við erum bara með sterkan og breyðan hóp og maður sá í restina að við höfðum alveg geta klárað þetta,''
Grindavík liggur í 4. sæti eftir 5 leiki í deildinni.
Við erum bara að hugsa um okkur og við erum taplausir eftir þessa leiki og það er vel. Við þurfum aðeins að þétta okkur betur í sóknarleiknum,''
Viðtalið má sjá í heild sinni hér að ofan























