Sjö leikmenn á fimmtugsaldri verða á meðal leikmanna á komandi heimsmeistaramóti.
Aðeins sjö leikmenn yfir fertugt hafa spilað á HM frá upphafi og geta átta bæst við í ár, þar sem Fernando Muslera, varamarkvörður Úrúgvæ, mun fagna fertugsafmæli sínu á mótinu.
Þar fara fremstir í flokki Cristiano Ronaldo, Luka Modric, Manuel Neuer og hinn sívinsæli mexíkóski markvörður, Guillermo Ochoa.
Þá er liðsfélagi Tómasar Bent hjá Hearts, Craig Gordon, elsti leikmaður mótsins en hann er 43 ára og er varamarkvörður Skota. Elsti leikmaður sem hefur spilað á HM frá upphafi er egypski markvörðurinn Essam El Hadary.

Átta elstu:
Craig Gordon (Skotland) - 43 ára og fimm mánaða
Cristiano Ronaldo (Portúgal) - 41 árs og þriggja mánaða
Guillermo Ochoa (Mexíkó) - 40 ára og tíu mánaða
Luka Modric (Króatía) - 40 ára og átta mánaða
Manuel Neuer (Þýskaland) - 40 ára og tveggja mánaða
Edin Dzeko (Bosnía og Hersegóvína) - 40 ára og tveggja mánaða
Vozinho (Grænhöfðaeyjar) - 40 ára
Fernando Muslera (Úrúgvæ) - 39 ára og ellefu mánaða
Allir 104 leikirnir á HM verða í beinni á RÚV.
Samfelldar útsendingar frá því síðdegis og fram á nótt.
Kvöldin verða geggjuð í sumar!