Benfica hefur klófest framherjann Raul de Tomas frá Real Madrid.
De Tomas spilaði mjög vel á láni hjá Rayo Vallecano á síðustu leiktíð en koma Luka Jovic til Real Madrid þýðir að lítið pláss er fyrir de Tomas í herbúðum Madrídarrisans.
De Tomas spilaði mjög vel á láni hjá Rayo Vallecano á síðustu leiktíð en koma Luka Jovic til Real Madrid þýðir að lítið pláss er fyrir de Tomas í herbúðum Madrídarrisans.
Benfica greiðir um 20 milljónir evra fyrir framherjann. De Tomas var á láni hjá Rayo síðustu tvö tímabil og skoraði 38 mörk í 65 deildarleikjum.
Hann náði ekki að spila deildarleik fyrir Real Madrid á sjö ára ferli sínum hjá félaginu.
Athugasemdir