Joao Felix er orðinn leikmaður Atletico Madrid en spænska félagið staðfesti það rétt í þessu. Þessi 19 ára portúgalski landsliðsmaður kemur frá Benfica og er orðinn dýrasti Portúgali sögunnar.
Felix er keyptur á 107 milljónir punda en hann hefur verið orðaður við mörg af stærstu félögum Evrópu, þar á meðal Manchester City, Juventus, Barcelona og Real Madrid.
Hann er dýrasti leikmaður Atletico í sögunni en Diego Simeone, stjóri liðsins, lagði mikla áherslu á að fá hann í sínar raðir.
Franski sóknarmaðurinn Antoine Griezmann er að öllum líkindum á leið frá Atletico en hann hefur verið sterklega orðaður við Barcelona.

#PureTalent pic.twitter.com/6oQX8dAUA6
— Atlético de Madrid (@atletienglish) July 3, 2019
Athugasemdir