Fotbolti.net
03.07.19 - 12:00
Magnús Már Einarsson

Leeds fær Helder Costa á láni (Staðfest)

Costa fagnar marki á síðasta tímabili.

Costa fagnar marki á síðasta tímabili.

Canon

Mynd: Getty Images

Leeds hefur fengið kantmanninn Helder Costa á láni frá Wolves út komandi tímabili.

Hinn 25 ára gamli Costa skoraði eitt mark í 25 leikjum með Wolves í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili.
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, er að safna liði til að gera aðra atlögu að því að komast upp í ensku úrvalsdeildina.

Jack Harrison kom á láni frá Manchester City í vikunni á sama tíma og Ben White kom á láni frá Brighton.

Costa hefur nú bæst við hópinn og stuðningsmenn Leeds binda miklar vonir við hann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.