Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 03. júlí 2019 15:01
Elvar Geir Magnússon
Luke Freeman til nýliðana í Sheffield (Staðfest)
Luke Freeman.
Luke Freeman.
Mynd: Sheffield United
Sheffield United hefur tilkynnt um kaup á miðjumanninum Luke Freeman frá Queens Park Rangers. Sheffield United komst á síðasta tímabili upp úr ensku Championship-deildinni og leikur því í úrvalsdeildinni á komandi tímabili.

Hinn 27 ára Freeman skoraði átta mörk í 48 leikjum fyrir QPR á síðasta tímabili. Hann var á sínum tíma í herbúðum Arsenal.

„Luke er einn besti leikmaður Championship og getur leyst ýmsar stöður. Ég held að hann smellpassi í okkar lið," segir Chris Wilder, stjóri Sheffield.


Athugasemdir
banner
banner