Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   mið 03. júlí 2019 20:34
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Þórsarar fá Aron Elí á láni frá Val (Staðfest)
Aron Elí í leik gegn Þórsurum í júní.
Aron Elí í leik gegn Þórsurum í júní.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Þórsarar fengu í dag liðsstyrk í baráttu liðsins í Inkasso-deildinni. Aron Elí Sævarsson, vinstri bakvörður samningsbundinn Val, er genginn til liðs við félagið á láni út leiktíðina.

Aron var á láni hjá Haukum fyrri hluta leiktíðarinnar.

Þórsarar seldu á dögunum Aron Kristófer Lárusson til ÍA. Þórsarar eru í harðri baráttu um að komast upp í Pepsi Max-deildina. Liðið er þremur stigum á eftir Fjölni sem situr í efsta sæti deildarinnar.




Athugasemdir
banner
banner