Hlynur Atli Magnússon, fyrirliði Fram, hefur jafnað sig af axlarmeiðslum en verður þó ekki með gegn Aftureldingu í Lengjudeildinni í kvöld þar sem hann er að klára sóttkví.
Hlynur meiddist í bikarsigri gegn Haukum fyrir Íslandsmót og er nú búinn að jafna sig af þessum meiðslum.
Án Hlyns hefur Fram unnið báða leiki sína í Lengjudeildinni, gegn Leikni Fáskrúðsfirði og Magna.
Leikur Fram og Aftureldingar hefst 19:15 og verður í beinni textalýsingu hér á Fótbolta.net.

Leikir kvöldsins í Lengjudeildinni
18:00 ÍBV-Víkingur Ó. (Hásteinsvöllur)
19:15 Magni-Leiknir F. (Grenivíkurvöllur)
19:15 Fram-Afturelding (Framvöllur)
19:15 Keflavík-Leiknir R. (Nettóvöllurinn)
Eftir nokkra vikna tíma í axlarmeiðslum frá leiknum við Hauka í bikar þá hefur fyrirliði Fram hann Hlynur Atli náð bata og fyrri styrk en hann verður samt ekki með í kvöld á móti Aftureldingu því kappinn er í sóttkví og lýkur henni á morgun. Það er bara næsti leikur ⚽️⚽️
— Haukur V. Magnússon (@haukur80) July 3, 2020
Athugasemdir