Zinedine Zidane, þjálfari Real Madrid, vill ekki sjá Lionel Messi fara frá erkifjendunum í Barcelona.
Framtíð Messi er í óvissu en mikið hefur gengið á innan herbúða Barcelona að undanförnu.
Hinn 33 ára gamli Messi verður samningslaus eftir ár og hann hefur oft verið hamingjusamari hjá Barcelona en í dag.
Zidane var spurður út í framtíð Messi eftir 1-0 sigur Real Madrid á Getafe í gær.

„Ég veit ekki hvað gerist en ég vona að hann fari ekki því að hann er í deildinni og við viljum hafa bestu leikmennina í þessari deild," sagði Zidane.
Sjá einnig:
Fjölmörg vandamál sem stuðla að hnignun Barcelona
Athugasemdir