Fotbolti.net
12.09.26 - 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

James Rodriguez aftur til Kólumbíu (Staðfest)

James Rodriguez aftur til Kólumbíu (Staðfest)
Canon

Mynd: EPA

Hinn 35 ára gamli James Rodriguez hefur skrifað undir samning við kólumbíska félagið Atletico Nacional eftir að hafa yfirgefið Minnesota United eftir stutta dvöl í Bandaríkjunum.
Þessi fyrrum leikmaður Real Madrid og Bayern Munchen skrifar undir eins árs samning með möguleika á framlengingu um ár til viðbótar.

Rodriguez er Kólumbíumaður en Atletico Nacional er annað kólumbíska liðið sem hann spilar fyrir. Hann hóf ferilinn hjá Envigado árið 2006 en hann fór til Porto frá argentíska félaginu Banfield árið 2010 og þá hófst Evrópuferillinn.

Rodriguez hefur spilað 131 landsleik og skorað 31 mark. Hann var í landsliðshópi Kólumbíu á HM í sumar.


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.