Fotbolti.net
03.07.21 - 08:30
Victor Pálsson

Southampton fær franskan varnarmann (Staðfest)

Southampton fær franskan varnarmann (Staðfest)
Canon

Mynd: Southampton

Southampton er búið að styrkja sig fyrir komandi átök á Englandi og samdi í gær við bakvörð.
Um er að ræða hinn 23 ára gamla Romain Perraud en hann kemur til félagsins frá Frakklandi.

Perraud hefur leikið með Brest í heimalandinu undanfarin tvö ár en var fyrir það á mála hjá Nice.

Perraud spilaði aðeins einn deildarleik fyrir Nice en var síðar fastamaður í liði Brest í tvö tímabil.

Perraud er 173 sentímetrar á hæð og á að baki átta landsleiki fyrir U21 landslið Frakka.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.