Fotbolti.net
03.07.26 - 22:49
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Salah dreymir um að mæta Messi - „Einn besti dagur ævinnar"

Salah dreymir um að mæta Messi - „Einn besti dagur ævinnar"
Canon

Mynd: EPA

Egyptaland vann leik í útsláttarkeppni á HM í fyrsta sinn þegar liðið lagði Ástralíu í vítaspyrnukeppni í 32-liða úrslitum í kvöld.

Mohamed Salah var kaldur á punktinum og skoraði með 'panenka' spyrnu þar sem hann vippaði beint á markið. Egyptar nýttu allar fjórar spyrnurnar sínar en Ástralar klikkuðu á tveimur.
Egyptaland mætir annað hvort Argentínu eða Grænhöfðaeyjum í 16-liða úrslitum en Argentína og Grænhöfðeyjar eigast við þessa stundina.

Leikmenn á borð við Lionel Messi og Cristiano Ronaldo ásamt Salah eru væntanlega á spila á sínu síðasta stórmóti. Salah var spurður hvaða leikmanni hann dreymir um að mæta.

„Messi, ég veit ekki hvort þetta verði síðasti dansinn fyrir nokkra frábæra leikmenn, Mér líður vel í dag, það gerir mig ekkert stoltari en að klæða mig í þessa treyju. Mér finnst gaman að sjá strákana ánægða og njóta augnabliksins, það er ekkert sem jafnast á við það," sagði Messi.

„Þetta var einn besti dagur ævi minnar. Að skrifa söguna með liðinu. Ég reyndi að gera mitt besta og spila meðan ég er meiddur. Það er það sem ég geri fyrir þjóðina."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.