Fotbolti.net
03.07.26 - 09:44
Elvar Geir Magnússon

Salah sagður klár í að spila í kvöld

Mohamed Salah.

Mohamed Salah.

Canon

Mynd: EPA

Mo Salah er sagður vera klár í slaginn fyrir Egypta sem mæta Áströlum í 32-liða úrslitum klukkan 18 í dag.

Fjölmiðlar segja þó óvíst hvort hann verði í byrjunarliðinu í Dallas eða komi af bekknum.

Salah var talinn tæpir fyrir leikinn vegna meiðsla aftan í læri en hann æfði með liðinu í gær og Hossam Hassan landsliðsþjálfari Egyptalands segir hann vera tilbúinn að spila.
HM um helgina - 32-liða úrslitin klárast og 16-liða úrslitin fara af stað
TENGT EFNI

HM um helgina - 32-liða úrslitin klárast og 16-liða úrslitin fara af stað

„Það eru gleðifréttir að hann mun spila, það er þó ekki víst hvort hann verði í byrjunarliðinu," segir Hassan.

Tony Popovic landsliðsþjálfari Ástralíu segir að sitt lið sé undirbúið fyrir það að Salah muni spila leikinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.