Fotbolti.net
02.07.26 - 15:46
Elvar Geir Magnússon

Boðið að segja af sér - Var með kærustuna með sér á mótinu

Julian Nagelsmann.

Julian Nagelsmann.

Canon

Mynd: EPA

Þýska blaðið Bild segir að stjórn þýska fótboltasambandsins hafi boðið Julian Nagelsmann landsliðsþjálfara að segja af sér. Stjórnin átti þriggja tíma fund með honum í höfuðstöðvum sambandsins í Frankfurt.

Á fundinum var Nagelsmann beðinn um að skýra slæmt gengi Þýskalands á HM en liðið tapaði fyrir Paragvæ í vítakeppni í 32-liða úrslitum. Rætt hafi verið um taktískt upplegg hans og einnig umhverfi liðsins.

Ljóst sé að ef Nagelsmann segir ekki upp störfum verði hann rekinn. Hann hafi til byrjun næstu viku til að ákveða sig. Nagelsmann er samningsbundinn út EM 2028 og hefur áður sagt að hann muni ekki segja upp.
Þýskir miðlar æfir eftir tapið - „Hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“
TENGT EFNI

Þýskir miðlar æfir eftir tapið - „Hnignun einu sinni frábærrar fótboltaþjóðar“

Þýska landsliðið hefur meðal annars fengið gagnrýni fyrir umgjörðina í kringum mótið og að konur og fjölskyldur leikmanna hafi fengið nánast óheftan aðgang að leikmönnum og heimasvæði þeirra.

Lothar Matthaus, fyrrum fyrirliði Þýskalands, segir að mótið hafi verið höndlað eins og sumarfrí með vinum og fjölskyldu og það hafi haft truflandi áhrif.

Athygli vakti að kærasta Nagelsmann, hin 34 ára Lena Wurzenberger, var mikið í herbúðum liðsins. Hún sást fylgjast með æfingu og fylgja Nagelsmann svo aftur á liðshótelið. Morguninn eftir fóru þau saman út að hjóla.

Matthaus segir að hvorki þjálfarinn né leikmennirnir hafi verið með fulla einbeitingu á verkefnið.
Lena Wurzenberger.

Lena Wurzenberger.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.