Argentínski markvörðurinn Juan Musso, sem á einn landsleik að baki, hefur reynst frábær frá komu sinni til Udinese fyrir tveimur árum.
Hann var ekki lengi að vinna sér inn byrjunarliðssæti eftir félagaskiptin frá Racing í heimalandinu og spilaði hann alla deildarleiki Udinese á tímabilinu.
Musso varði 10 skot í 0-1 sigri á Sassuolo í lokaumferðinni og hélt þar með hreinu í fjórtán deildarleikjum, einum leik meira en Gianluigi Donnarumma og Samir Handanovic, markverðir AC Milan og Inter.
Musso er 26 ára gamall og var eftirsóttur af Inter í vor, en liðið vildi fá hann sem varamarkvörð fyrir Handanovic.
Musso er samningsbundinn Udinese til 2023 og vill félagið ekki selja markvörðinn. Hann er þó með söluákvæði í samningnum sem hljóðar uppá 35 milljónir evra.
Athugasemdir