Fotbolti.net
29.11.26 - 16:48
Brynjar Ingi Erluson

Neuer ætlar að hætta eftir tímabilið

Neuer ætlar að hætta eftir tímabilið
Canon

Mynd: EPA

Manuel Neuer, markvörður Bayern München, stefnir á að leggja hanskana á hilluna að loknu þessu tímabili.
Hinn fertugi Neuer hefur verið einn besti markvörður heims á þessari öld og skipað sér í hóp bestu markvarða allra tíma.

Hann hefur unnið ógrynni titla með Bayern og varð auk þess heimsmeistari með þýska landsliðinu árið 2014.

Samningur hans við Bæjara rennur út næsta sumar og gerir hann fastlega ráð fyrir því að þá muni hann leggja hanskana á hilluna.

„Ég geri ráð fyrir að tíma mínum hér ljúki næsta sumar, en þangað til ætla ég að njóta þess tíma sem ég á eftir.“

„Ég var 85 prósent ákveðinn í að leggja hanskana á hilluna í sumar, en andrúmsloftið hjá Bayern er einfaldlega svo gott að ég ákvað að halda áfram,“
sagði Neuer í dag.

Hann er á meiðslalistanum sem stendur en áætlað er að hann snúi aftur í mark Bæjara í janúar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.