Fotbolti.net
03.09.14 - 21:16
Daníel Freyr Jónsson

Þórður: Kom mér á óvart hversu slakt liðið var

Auglýsing
Þórður Þórðarson.

Þórður Þórðarson.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hrafnhildur Heiða Gunnlaugsdóttir

Hertz
Þórður Þórðarson, stjóri kvennaliðs ÍA, var ekki ánægður með lið sitt eftir 3-0 tap gegn Aftureldingu á heimavelli í kvöld.

Liðin sátu í fallsætunum fyrir leik, en með sigrinum fór Afturelding úr fallsæti. ÍA er hinsvegar áfram eitt á botni deildarinnar með einungis 1 stig.
,,Við áttum ekki góðan dag í dag. Þær fengu fína leikmenn í glugganum sem hafa styrkt þær mikið og við vissum það svosem. Þær kom mér bara á óvart í dag hversu slakt okkar lið var,\" sagði Þórður.

ÍA mun falla niður í 1. deildina, en Þórður býst þó við að leikmenn liðsins muni gefa allt sitt í lokaleikina.

,,Ég held að stelpurnar muni gefa allt í síðustu leikina. Leikurinn í dag er annar af tveimur virkilega slökum leikjum í sumar. Það er eitthvað sem við munum vinna í fram að leiknum í Eyjum á sunnudaginn.\"

,,Við munum gera okkar besta þar. Við munum keyra á þessum stelpum sem við erum með.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.