Malen, Maguire, Rashford, Greenwood, Yoro, Eriksen og fleiri góðir í slúðri dagsins
   mán 03. október 2022 11:24
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Gæti ekki verið stoltari af bróður sínum - „Hans árangur er líka minn árangur"
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nökkvi Þeyr Þórisson var í síðasta mánuði keyptur til belgíska félagsins Beerschot frá KA. Tvíburabróðir Nökkva, Þorri Mar, ræddi við Fótbolta.net í gær eftir sigur KA á KR. Þorri var spurður út í bróður sinn.

Sjá einnig:
„Besta tilfinning í heimi að spila með bróður sínum"

Nökkvi hefur byrjað vel í Belgíu, skorað í tveimur leikjum í röð. „Hann heldur áfram að standa sig. Eins og ég segi er hans árangur líka minn árangur. Við höfum verið saman í þessu frá því að við vorum liggur við í bumbunni á mömmu. Við erum búnir að haldast í hendur næstum því alla tíð. Það kemur náttúrulega að því að leiðir skiljast. Ég hef engar áhyggjur af honum, hann heldur áfram að gera sitt og ég gæti ekki verið stoltari af honum," sagði Þorri.

Þorri átti þátt í sigurmarki KA gegn KR í gær. „Ég geri alltaf grín að því að ég var alltaf að þrífa upp eftir hann. Núna er hann farinn, þá get ég loksins farið að sækja."

„Markmiðið er alltaf að komast eins langt og maður getur og ef að ég get elt hann þá væri það bara bónus. Ég held bara áfram að reyna bæta minn leik og gera mitt besta,"
sagði Þorri.
Þorri Mar: Það er bónus ef markið er skráð á mig
Athugasemdir
banner
banner
banner