Real Madrid tapaði sínum fyrstu stigum á leiktíðinni í gær þegar liðið gerði jafntefli gegn Osasuna, 1-1.
Real fékk tækifæri til að vinna leikinn þegar skammt var til leiksloka en liðið fékk víti. Karim Benzema tók vítið en negldi boltanum í slána.
Vinicus Jr skoraði mark Real en hann var greinilega handviss um að Benzema myndi skora því hann virtist vera fagna áður en Benzema tók vítaspyrnuna.
Real missti toppsætið til erkifjenda sinna í Barcelona en liðin eru jöfn að stigum.
Athugasemdir