Fotbolti.net
03.11.14 - 17:39
Hafliði Breiðfjörð

Dagbjört Ína gengur til liðs við Barcelona (Staðfest)

Dagbjört Ína ásamt Lionel Messi sem hún hitti úti á götu í Barcelona í síðustu viku.

Dagbjört Ína ásamt Lionel Messi sem hún hitti úti á götu í Barcelona í síðustu viku.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Kvennaboltinn
15 ára gömul íslensk stúlka, Dagbjört Ína Guðjónsdóttir, er gengin til liðs við unglingalið Barcelona á Spáni.
Dagbjört Ína er dóttir Guðjóns Vals Sigurðssonar fyrirliða handboltalandsliðs Íslands. Hann gekk til liðs við Barcelona í sumar og hjálpaði dóttur sinni að komast á reynsluæfingar hjá Barcelona þar sem hún sá svo sjálf um að sanna sig.

Dagbjört Ína sem er miðjumaður fékk 6 æfingar til að sanna sig hjá félaginu og gerði það með stæl og er nú komin inn í unglingalið Barcelona sem hefur á að skipa leikmönnum á aldrinum 14 - 15 ára.

Hún hefur notið aðstoðar Silju Úlfarsdóttur sem hefur þjálfað afreksíþróttamenn undanfarin ár við æfingar.

Dagbjört Ína hefur spilað hér á landi á sumrin með KR, Gróttu og svo Gróttu/KR í sumar. Annars hefur hún fylgt föður sínum þar sem hann hefur verið á ferlinum. Hún byrjaði að spila með strákaliði 1.fc Gummersbach á sínum tíma. Ekkert kvennalið var hjá félaginu en hún þótti svo góð að hún fékk að spila með strákunum.

Þaðan fór hún 1899 Hoffeinheim og var i kvennadeild hjá þeim og svo til Fremad Valdy og Rot Schwarz Kiel þar sem hún varð fylkismeistari með 2. flokki en þá spilaði hún flokk uppfyrir sig. Í kjölfarið flutti fjölskyldan til Barcelona í sumar.
Dagbjört Ína í búningi Barcelona liðsins.

Dagbjört Ína í búningi Barcelona liðsins.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.