03.11.14 - 22:32
Ívan Guðjón Baldursson
Kristinn Freyr framlengir við Val (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hinn 23 ára gamli Kristinn Freyr Sigurðsson er búinn að skrifa undir tveggja ára samningsframlengingu við Val.
Knattspyrnufélagið Valur var að tilkynna framlenginguna rétt í þessu með því að birta á Twitter myndband, hér fyrir neðan, af viðtali við Kristinn.
Knattspyrnufélagið Valur var að tilkynna framlenginguna rétt í þessu með því að birta á Twitter myndband, hér fyrir neðan, af viðtali við Kristinn.
Kristinn Freyr hefur verið mikilvægur á miðju liðsins undanfarin tímabil og er spenntur fyrir komandi tímabili hjá Valsmönnum sem luku keppni í 5. sæti Pepsi-deildarinnar í ár.
„Kristinn er að hefja sitt fjórða tímabil með Val og er fyrir löngu orðinn einn af mikilvægustu mönnum liðsin, innan vallar sem utan,\" segir á heimasíðu Vals.
„Kristinn er að hefja sitt fjórða tímabil með Val og er fyrir löngu orðinn einn af mikilvægustu mönnum liðsin, innan vallar sem utan,\" segir á heimasíðu Vals.
