Fotbolti.net
03.11.14 - 17:47
Elvar Geir Magnússon

Úlfarnir fá Kuszczak (Staðfest)

Úlfarnir fá Kuszczak (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Pólski landsliðsmarkvörðurinn Tomasz Kuszczak hefur samið við Wolves. Þessi 32 ára leikmaður kemur á frjálsri sölu en hann yfirgaf Brighton í sumar.

Hann hefur skrifað undir stuttan samning til janúar til að vera til taks sem varamarkvörður fyrir Carl Ikeme.
„Wolves er félag sem á að vera í úrvalsdeildinni og ég vil taka þátt í að koma liðinu þangað,\" segir Kuszczak.

Kuszczak var sjö tímabil hjá Manchester United.

Wolves er í toppbaráttunni í ensku Championship-deildinni en stöðuna má sjá hér fyrir neðan:
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.