03.11.20 - 11:09
Elvar Geir Magnússon
Þorvaldur hættur sem landsliðsþjálfari U19 (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ og Þorvaldur Örlygsson hafa komist að samkomulagi um að Þorvaldur láti af störfum sem þjálfari U19 landsliðs karla. Þetta kemur fram á heimasíðu KSÍ.
Þorvaldur, sem er knattspyrnuáhugafólki að góðu kunnur, tók við starfi þjálfara U19 karla í árslok 2014. Síðan þá hefur hann stýrt U19 liðinu í 22 leikjum, auk þess að stýra U18 liði karla í 8 leikjum.
„KSÍ þakkar Þorvaldi fyrir góð störf og óskar honum velfarnaðar," segir á heimasíðu KSÍ.
Þorvaldur býr yfir gríðarlegri reynslu sem þjálfari en áður en hann hóf störf hjá KSÍ þjálfaði hann KA, Fjarðabyggð, Fram, ÍA, HK og Keflavík.
Sem leikmaður lék hann í atvinnumennsku erlendis með Nottingham Forest, Stoke City og Oldham.