Tíu skemmtikraftar sem gætu yfirgefið Bestu í vetur
Það var ekki vöntun á skemmtilegum ungum leikmönnum í deildinni í sumar. Hér fyrir neðan er tíu manna listi af þeim sem gætu tekið skrefið út í atvinnumennsku í vetur.

Markús Páll Ellertsson - Efsti maður á lista og það væri hreinlega skrýtið skyldi hann ekki fara út. Hefur verið orðaður við Lyngby, Rosenborg, Silkeborg og Thun.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Dagur Orri Garðarsson - Var nálægt því að fara út í sumar en Valur hafnaði 30 milljóna króna tilboði danska B-deildarliðsins Fredericia í hann undir lok sumargluggans. Þá hafnaði Dagur sjálfur samningstilboði slóvakíska liðsins MSK Zilina í sumar. Hann er enn á blaði hjá báðum þessum félögum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Galdur Guðmundsson - Kom frábærlega inn í lið KR-inga eftir að Amin var seldur. Galdur kom alls að 14 mörkum í 22 leikjum og hafa félög erlendis verið með augastað á KR-ingnum.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Kári Halldórsson - Það vita flestir hvaða hæfileikum Kjartan Kári býr yfir. Hann var nálægt því að ganga til liðs við Víking í sumar en hélt tryggð við Fimleikafélagið. Skoraði átta og lagði upp ellefu mörk í 27 deildarleikjum í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Freyr Sigurðsson - Einn af skemmtilegustu leikmönnum deildarinnar en hefur verið lítið orðaður við skrefið út í atvinnumennsku. Rúnar Kristinsson, þjálfari Fram, sagði á dögunum að það væri ekki útilokað að hann færi út í vetur.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Einar Freyr Halldórsson - Fæddur árið 2008 og byrjaði 24 leiki með Þórsurum í sumar á miðjunni. Hann hefur m.a. verið orðaður við Rosenborg og Brann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Óskar Borgþórsson - Fór með himinskautum með Víkingum áður en hann meiddist illa. Kom að 17 mörkum í 16 leikjum og er á blaði hjá m.a. Luton, sem leikur í ensku C-deildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Gils Gíslason - Steig verulega upp eftir því sem leið á tímabilið og skoraði alls níu mörk. Svo gott sem ómögulegt að ráða við hann þegar hann tekur af rás.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stígur Diljan Þórðarson - Hafandi verið meiddur í byrjun tímabils kom Stígur vel inn í meiðslahrjáð lið Víkings. Hann er á blaði hjá erlendum félögum og var hann m.a. orðaður við svissnesku meistarana í Thun í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Breki Kárason - Sannkallaður skemmtikraftur. Skoraði fimm og lagði upp átta í sautján leikjum með KR á tímabilinu. Spurning hvort að hæðin vinni gegn honum þegar lið erlendis frá skoða hann.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
