03.11.26 - 14:40
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Hulda Hrund yfirgefur Stjörnuna

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hulda Hrund Harnarsdóttir hefur yfirgefið Stjörnuna eftir þrjú og hálft tímabil hjá félaginu, en hún kom frá Danmörku í sumarglugganum 2023.
Hulda spilaði 95 leiki fyrir Stjörnuna og skoraði 14 mörk. Á liðnu tímabili skoraði hún tvö mörk í 19 deildarleikjum.

Hulda Hrund er 29 ára sóknarmaður sem uppalin er hjá Fylki og var á sínum tíma á mála hjá Thy ThistedQ í Danmörku.
Hún lék á sínum tíma 20 leiki fyrir yngri landsliðin og skoraði í þeim fimm mörk.
„Við þökkum henni fyrir allar góðu stundirnar, hennar framlag og allt það sem hún hefur lagt til félagsins á þessum tíma. Við óskum Huldu Hrund alls hins besta í því sem tekur við og þökkum henni kærlega fyrir!" segir m.a. í tilkynningu Stjörnunnar.