Fotbolti.net
03.11.26 - 13:07
Elvar Geir Magnússon

Ari í Haraldstovu heldur sæti sínu í færeyska hópnum

Ari í Haraldsstovu Petersen.

Ari í Haraldsstovu Petersen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ari í Haraldsstovu Petersen, leikmaður ÍBV, er í færeyska landsliðshópnum sem er að fara að mæta Slóvakíu og Moldóvu í C-deild Þjóðadeildarinnar.

Hann var líka í hópnum í síðasta glugga en sat á bekknum í öllum fjórum leikjunum þar sem aðalmarkvörður Færeyja, Mattias Heðinsson Lamhauge, stóð vaktina í rammanum.

Ari varði mark ÍBV í sumar en liðið endaði í neðsta sæti Bestu deildarinnar.

Hér að neðan má sjá hvernig færeyski hópurinn er mannaður. Gunnar Vatnhamar er á sínum stað og þá eiga nýkrýndir Færeyjameistarar NSÍ í Runavík fjóra leikmenn í hópnum en liðið hefur gert frábæra hluti undir stjórn Sigurðar Ragnars Eyjólfssonar.

Færeyjar eru í öðru sæti riðilsins með fjögur stig en Slóvakía er á toppnum með tíu. Moldóva er einnig með fjögur stig og Kasakstan rekur svo lestina með aðeins tvö stig.
Markverðir
Bárður á Reynatröð, Víkingur
Mattias Heðinsson Lamhauge, Strömsgodset IF (NO)
Ari í Haraldstovu Petersen, ÍBV (ÍSL)

Varnarmenn:
Gunnar Vatnhamar, Vejle BK (DK)
Andrias Edmundsson, Hellas Verona (ITA)
Odmar Færø, KÍ
Samuel Chukwudi, SV Ried (EYS)
Arnbjörn Svensson, Víkingur
Viljormur Davidsen, NSÍ
Martin Agnarsson, Mjällby AIF (SVØ)
Jann Benjaminsen, NSÍ
Jóannes Kalsö Danielsen, KÍ
Ari Olsen, Vendsyssel FF (DK)

Miðjumenn:
Géza Dávid Turi, Grimsby Town (ENG)
Jákup Biskopstö, KÍ
Poul Kallsberg, Hilleröd (DK)
Mattias Hellisdal, Västerås SK (SVÍ)
Jóannes Bjartalíð, FC Kyzylzhar (KAS)
Hanus Sörensen, NK Aluminij Kidricevo (SLO)
Áki Samuelsen, Mjällby AIF (SVÍ)
Aron Benjaminsen, Hearts FC (SKO)

Sóknarmenn:
Petur Knudsen, NSÍ
Adrian Justinussen, AC Horsens
Meinhard Egilsson Olsen, NSÍ
Gunnar Vatnhamar.

Gunnar Vatnhamar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.