Líklegur landsliðshópur - Fjórar breytingar

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum riðilsins í Þjóðadeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Arnar opinberar hópinn á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó hefur tekið sér ótímabundið leyfi hjá AGF af fjölskylduástæðum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hjörtur Hermannsson var ekki valinn í síðasta glugga vegna leikjaálags í Svíþjóð.

Mynd: Guðmundur Svansson

U21 landsliðið mætir Grikklandi í umspili um sæti á EM í sama glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Júlíus Magnússon hefur verið að gera góða hluti með Elfsborg í Svíþjóð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristian hefur snúið til baka eftir meiðsli.

Mynd: EPA

Meiddist gegn Eistlandi í síðasta glugga og verður ekki til taks.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sjóðheitur með Blackburn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði þrjú og lagði upp tvö í síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fór á kostum með U21 í haust.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Ísland mætir Búlgaríu og Lúxemborg í síðustu tveimur leikjum riðilsins í Þjóðadeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Um er að ræða útileik gegn Búlgaríu (13. nóvember) og heimaleik gegn Lúxemborg (16. nóvember). Ísland er á toppi riðilsins með átta stig, tveimur stigum meira en Eistland sem er í 2. sæti.
Vinni Ísland riðilinn fer liðið beint upp í B-deildina og möguleiki er að sigur í riðlinum tryggi umspil um sæti á EM 2028.
Ýmsir leikmenn úr U21 landsliðinu gera tilkall í hópinn en spurning er hvort að þeir verði valdir þar sem U21 liðið er að spila umspilsleiki gegn Grikklandi um sæti á EM næsta sumar í sama glugga.
Hákon Rafn Valdimarsson - Brentford
Rúnar Alex Rúnarsson - FC Kaupmannahöfn
Anton Ari Einarsson - Breiðablik
(Lúkas J. Blöndal Petersson, Adam Ingi Benediktsson, Patrik Gunnarsson)
Hákon kom frábærlega inn í markið í síðasta glugga í fjarveru Elíasar Rafns og var hann meðal bestu manna Íslands.
Ekki er búist við að Elías nái þessum glugga þar sem hann er meiddur í nýra. Hann hefur ekkert spilað síðan um miðjan september og vonast hann til að vera kominn aftur á fullt fyrir áramót.
Rúnar Alex sneri aftur sem varamarkvörður í síðasta landsliðshóp eftir nokkurra ára fjarveru og þá var Anton Ari Einarsson þriðji markvörður.
Varnarmenn:
Guðlaugur Victor Pálsson - AC Horsens
Hjörtur Hermannsson - Gautaborg
Mikael Neville Anderson - AGF
Aron Einar Gunnarsson - Qatar SC
Hörður Björgvin Magnússon - Atromitos
Logi Tómasson - Samsunspor
Mikael Egill Ellertsson - Genoa
Stefán Teitur Þórðarson - Hannover 96
(Daníel Leó Grétarsson, Alfons Sampsted, Valgeir Lunddal, Davíð Kristján Ólafsson, Kolbeinn Birgir Finnsson, Brynjar Ingi Bjarnason, Dagur Dan Þórhallsson, Daníel Freyr Kristjánsson, Nóel Atli Arnórsson, Davíð Helgi Aronsson, Júlíus Mar Júlíusson)
Daníel Leó Grétarsson hefur tekið sér ótímabundið leyfi af fjölskylduástæðum hjá AGF og því ólíklegt að hann gefi kost á sér í landsliðsverkefnið. Hörður Björgvin gæti komið inn í hans stað vinstra megin í vörninni.
Þá er Sverrir Ingi Ingason ekki til taks þar sem hann sleit krossband í sumar. Stefán Teitur Þórðarson spilaði sem miðvörður í síðasta glugga í hans fjarveru.
Hjörtur Hermannsson var ekki valinn í síðasta verkefni vegna leikjaálags en það liggur beinast við að hann komi inn í hópinn.
Komandi gluggi er sá síðasti sem Aron Einar Gunnarsson mun spila skyldi hann verða valinn en hann hefur gefið út að hann ætli að leggja landsliðsskóna á hilluna eftir Þjóðadeildina.
Miðjumenn og kantmenn:
Hákon Arnar Haraldsson - Lille
Ísak Bergmann Jóhannesson - Köln
Jón Dagur Þorsteinsson - Hertha BSC
Kristall Máni Ingason - Brann
Gylfi Þór Sigurðsson - Víkingur R.
Kristian Hlynsson - Twente
Arnór Sigurðsson - Kalamata
Júlíus Magnússon - Elfsborg
(Þórir Jóhann Helgason, Willum Þór Willumsson, Tómas Bent Magnússon, Bjarki Steinn Bjarkason, Kolbeinn Þórðarson, Eggert Aron Guðmundsson, Amin Cosic, Ari Sigurpálsson)
Albert Guðmundsson hefur ekkert spilað frá því að hann meiddist á öxl gegn Eistum í fyrsta leik síðasta verkefnis. Búist er við því að hann snúi aftur á völlinn með Lazio skömmu eftir landsleikjahlé.
Þórir Jóhann var kallaður inn í hópinn í stað Alberts en hann kom ekkert við sögu í þeim þremur leikjum sem hann var til taks í. Við spáum því að Kristian Hlynsson komi í staðinn í hópinn, þrátt fyrir að vera meiri miðjumaður, en hann var ekki með síðast vegna meiðsla.
Spennandi kostur á vænginn væri Amin Cosic sem spilaði á dögunum sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni. Hann þarf að gera upp á milli hvort hann velji að spila fyrir landslið Íslands eða Bosníu og Hersegóvínu. Þá kemur aftur að umspilsleikjum U21 landsliðsins og hvort að þeir fái forgang fram yfir A-landsliðið.
Júlíus Magnússon hefur verið að gera góða hluti með Elfsborg í Svíþjóð að undanförnu og gerir sterkt tilkall að koma inn í hópinn. Arnar þekkir hann vel hafandi stýrt honum hjá Víkingi.
Andri Fannar spilaði ekki með Kasimpasa um helgina og gæti Júlíus komið inn í hans stað skyldi Andri vera meiddur.
Sóknarmenn:
Orri Steinn Óskarsson - Real Sociedad
Andri Lucas Guðjohnsen - Blackburn
Brynjólfur Andersen Willumsson - Groningen
Sævar Atli Magnússon - Brann
(Ísak Snær Þorvaldsson, Daníel Tristan Guðjohnsen, Viktor Bjarki Daðason, Stefán Ingi Sigurðarson, Benóný Breki Andrésson)
Orri og Andri hafa verið heitir undanfarnar vikur sem verður að teljast góð tíðindi. Þeir náðu vel saman í síðasta glugga og skoruðu þeir samtals fimm mörk í leikjunum fjórum.
Brynjólfur Andersen hefur sömuleiðis verið funheitur með Groningen í Hollandi og er hann markahæsti leikmaður Eredevise með átta mörk, ásamt tveimur öðrum. Spurning hvort að hann verði í stærra hlutverki í komandi glugga.
Ísak Snær var nokkuð óvænt valinn í síðasta hóp. Hann gæti vikið út í stað Sævars Atla Magnússonar sem var í stóru hlutverki með liðinu áður en hann meiddist illa gegn Frökkum fyrir rúmu ári síðan.
Daníel Tristan skoraði fjögur mörk í þremur leikjum með U21 fyrr í haust og er hann líklegastur til að koma inn í hópinn af leikmönnnum U21 landsliðsins.
Meiddir/fjarverandi
Sverrir Ingi Ingason
Elías Rafn Ólafsson
Albert Guðmundsson
Daníel Leó Grétarsson
Andri Fannar Baldursson (tæpur)

Arnar opinberar hópinn á morgun.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Daníel Leó hefur tekið sér ótímabundið leyfi hjá AGF af fjölskylduástæðum.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Hjörtur Hermannsson var ekki valinn í síðasta glugga vegna leikjaálags í Svíþjóð.

Mynd: Guðmundur Svansson

U21 landsliðið mætir Grikklandi í umspili um sæti á EM í sama glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Júlíus Magnússon hefur verið að gera góða hluti með Elfsborg í Svíþjóð.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kristian hefur snúið til baka eftir meiðsli.

Mynd: EPA

Meiddist gegn Eistlandi í síðasta glugga og verður ekki til taks.

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Sjóðheitur með Blackburn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Skoraði þrjú og lagði upp tvö í síðasta glugga.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Fór á kostum með U21 í haust.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson
