03.11.26 - 12:14
Kári Snorrason
UEFA boðar mínútuþögn í öllum Evrópuleikjum vikunnar

Jesús de Miguel.

Mynd: Tenerife

Jesús de Miguel.

Mynd: Tenerife
Mínútuþögn verður í öllum Evrópuleikjum UEFA í vikunni til að heiðra minningu Jesús de Miguel sem lést í morgun eftir að hafa farið í hjartastopp í leik Tenerife og Andorra í spænsku B-deildinni.
Þá hefur öllum bikar- og deildarleikjum á Spáni sem áttu að fara fram í dag verið frestað í kjölfar andlátsins. Leikir Barcelona, Atletico Madrid og Villareal í Meistaradeildinni fara þó fram í dag.
Þá hefur öllum bikar- og deildarleikjum á Spáni sem áttu að fara fram í dag verið frestað í kjölfar andlátsins. Leikir Barcelona, Atletico Madrid og Villareal í Meistaradeildinni fara þó fram í dag.

TENGT EFNI
Leikmaður lést eftir að hafa farið í hjartastopp í leik á Spáni
De Miguel, sem var þrítugur, lenti í harkalegu samstuði við markvörð Andorra og féll hann í kjölfarið meðvitundarlaus í grasið. Sjúkralið sinnti honum á vellinum áður en hann var fluttur með sjúkrabíl á sjúkrahús. Leiknum var frestað eftir atvikið.
Tenerife greindi frá því í gærkvöldi að ástand De Miguel væri stöðugt en alvarlegt. Honum hrakaði hins vegar í nótt og lést hann á sjúkrahúsi klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma.
Tenerife greindi frá því í gærkvöldi að ástand De Miguel væri stöðugt en alvarlegt. Honum hrakaði hins vegar í nótt og lést hann á sjúkrahúsi klukkan sjö í morgun að íslenskum tíma.
???? The European football community is mourning the loss of @CDTOficial forward Jesús de Miguel Alameda.
— UEFA (@UEFA) November 3, 2026
We extend our deepest condolences to his family, friends and teammates during this incredibly difficult time.
A moment of silence will be observed at all UEFA matches this week in his memory.
???? https://t.co/F6FnR3UKMX
