Fotbolti.net
03.12.14 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Prosinecki tekur við Aserbaídsjan (Staðfest)

Prosinecki spilaði meðal annars með Real Madrid og Barcelona á ferli sínum.

Prosinecki spilaði meðal annars með Real Madrid og Barcelona á ferli sínum.

Canon

Mynd: Getty Images

Robert Prosinecki, fyrrum leikmaður króatíska landsliðsins, hefur verið ráðinn landsliðsþjálfari Aserbaídsjan

Hinn 45 ára gamli Prosinecki var síðast þjálfari Kayserispor í Tyrklandi en hann hefur einnig þjálfað Rauðu Stjörnuna og verið aðstoðarþjálfari króatíska landsliðsins.

Hann tekur við Aserbaídsjan af Berti Vogts sem hætti í október eftir skelfilegt gengi í byrjun undankeppni EM.
Prosinecki er mikill reykingarmaður en hann reykti allt að 40 sígarettur á dag á ferli sínum sem leikmaður. Hann reykir ennþá mikið í dag eins og Grétar Rafn Steinsson sagði frá í viðtali á Fótbolta.net árið 2012 en hann lék udir stjórn Prosinedcki hjá Kayserispor.

,,Eftir einn matartímann spurðu þeir (þjálfararnir) hvort einhver vildi kaffi og sígarettu og það horfðu bara allir á þá,\" sagði Grétar í viðtalinu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.