Fotbolti.net
03.12.14 - 22:37
Elvar Geir Magnússon
- Þjálfaramál

Þorlákur kominn í vinnu hjá Brommapojkarna (Staðfest)

Á hliðarlínunni hjá U17 landsliðinu.

Á hliðarlínunni hjá U17 landsliðinu.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Þorlákur Árnason hefur formlega tekið við sem yfirþjálfari unglingaakademíu sænska félagsins Brommapojkarna. Frá þessu er greint á vefsíðu félagsins.
Þorlákur gerði kvennalið Stjörnunnar að meisturum í tvígang árin 2011 og 2013 áður en hann lét af störfum og tók við U17 ára liði karla hjá KSÍ en hann er nú hættur í því starfi. Þá hefur Þorlákur þjálfað hjá Val, ÍA og Fylki.

Haft er eftir honum á heimasíðu Brommapojkarna að hann muni gefa sig allan í starfið en unglingastarf félagsins er vel þekkt og margir spennandi leikmenn komið upp.

Magni Fannberg hefur undanfarin ár þjálfað U19 ára lið Brommapojkarna en hann er orðinn þjálfari aðalliðs félagsins sem féll úr sænsku úrvalsdeildinni á dögunum.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.