Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fim 03. desember 2020 17:45
Magnús Már Einarsson
Clichy í fallbaráttuna í Sviss (Staðfest)
Mynd: Getty Images
Gael Clichy, fyrrum varnarmaður Arsenal og Manchester City, hefur samið við Servette í úrvalsdeildinni í Sviss.

Philippe Senderos, fyrrum liðsfélagi Clichy hjá Arsenal, er yfirmaður íþróttamála hjá Servette.

Hinn 35 ára gamli Clichy gerði eins árs samning við Servette og á að hjálpa liðinu í fallbaráttunni í Sviss.

Servette er á botninum í úrvalsdeildinni í Sviss með einungis einn sigur í átta leikjum.

Clichy hefur verið án félags síðan samningur hans hjá tyrkneska félaginu Istanbul Basaksehir rann út í sumar.
Athugasemdir
banner
banner
banner