Ricardo Pereira, hægri bakvörður Leicester, mun spila sinn fyrsta leik í níu mánuði þegar liðið mætir Zorya Luhansk í Evrópudeildinni í kvöld.
Portúgalinn hefur verið frá keppni í langan tíma eftir að hann sleit krossband í hné.
Portúgalinn hefur verið frá keppni í langan tíma eftir að hann sleit krossband í hné.
Wilfred Ndidi og Caglar Soyuncu spila væntanlega báðir í kvöld eftir meiðsli.
„Þetta er tækifæri til að stilla upp leikmönnum sem eru að koma með endurkomu og líka ungum leikmönnum," sagði Brendan Rodgers, stjóri Leicester.
Leicester er komið áfram í 32-liða úrslitin en liðið bókaði farseðilinn þangað með dramatíksu 3-3 jafntefli gegn Braga í síðustu viku.
Athugasemdir