Úrúgvæski framherjinn Luis Suarez er klár í slaginn með Atlético Madríd en hann er laus við kórónaveiruna.
Suarez greindist með kórónaveiruna þann 13. nóvember og missti því af mikilvægum leik gegn sínum gömlu félögum í Barcelona.
Hann missti einnig af leik liðsins gegn Bayern München í Meistaradeildinni í gær en verður klár í slaginn er Atlético spilar við Real Valladolid um helgina.
Þetta eru afar jákvæðar fréttir fyrir Atlético sem er í harðri baráttu um að komast upp úr riðlinum í Meistaradeildinni. Liðið er með 6 stig í öðru sæti og á erfiðan útileik gegn Salzburg í næstu viku en austurríska liðið er með 4 stig.
Suarez er með 5 mörk og 1 eina stoðsendingu í 9 leikjum með Atlético á þessari leiktíð en liðið vonast til að taka topssætið í spænsku deildinni næstu helgi.
Athugasemdir