Fotbolti.net
28.09.26 - 15:32
Elvar Geir Magnússon

Gakpo í frekari skoðun hjá Liverpool

Cody Gakpo.

Cody Gakpo.

Canon

Mynd: EPA

Liverpool hefur staðfest að sóknarleikmaðurinn Cody Gakpo tekur ekki frekari þátt með Hollandi í þessum landsleikjaglugga.

Hann sé á leið á æfingasvæði Liverpool þar sem hann mun gangast undir frekari skoðun á ökklameiðslum.

Hann fór meiddur af velli í 2-1 sigri gegn Serbíu í Þjóðadeildinni á sunnudaginn.

Næsti leikur Liverpool verður 11. október, gegn Manchester City í ensku úrvalsdeildinni. Um helgina þurfti Alexander Isak að draga sig úr sænska landsliðshópnum vegna smávægilegra meiðsla.
Isak dregur sig úr sænska landsliðshópnum
TENGT EFNI

Isak dregur sig úr sænska landsliðshópnum


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.