Fotbolti.net
04.02.15 - 13:29
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Kaplakrika

Belginn Jeremy Serwy í FH (Staðfest)

Við undirskriftina í dag.

Við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kantmaðurinn belgíski Jeremy Serwy hefur gert tveggja ára samning við FH. Serwy verður 24 ára á árinu en hann kom til reynslu hjá FH í vetur þar sem hann náði að heilla þjálfara liðsins.
Serwy var á mála hjá Borussia Dortmund á síðasta tímabili þar sem hann spilaði með varaliði félagsins en einnig hefur hann leikið í Ungverjalandi og í Belgíu.

Hann skoraði tvö mörk beint úr aukaspyrnum á Fótbolta.net mótinu, gegn Breiðabliki og Þrótti, og er greinilega með góða spyrnutækni.

FH-ingar hyggjast bæta við sig fleiri erlendum leikmönnum áður en keppni í Pepsi-deildinni hefst.

Viðtöl við Heimi Guðjónsson þjálfara og Serwy koma inn á Fótbolta.net á eftir. Einnig kemur inn viðtal við Bjarna Þór Viðarsson sem skrifaði undir þriggja ára samning á fréttamannafundinum á eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.