Fotbolti.net
04.02.15 - 13:01
Elvar Geir Magnússon
- skrifar frá Kaplakrika

Bjarni Þór Viðarsson í FH (Staðfest)

Bjarni ásamt Davíð Þór Viðarssyni bróður sínum við undirskriftina í dag.

Bjarni ásamt Davíð Þór Viðarssyni bróður sínum við undirskriftina í dag.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Bjarni Þór Viðarsson er kominn í raðir FH. Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, segist lengi hafa reynt að fá Bjarna heim og nú hefur það tekist.

Samningur Bjarna er til þriggja ára.
Bjarni er 26 ára miðjumaður og er bróðir Davíðs Þórs Viðarssonar, einn reyndasta leikmanns FH, en báðir eru þeir uppaldir hjá félaginu.

Bjarni hefur undanfarin ár verið í herbúðum Silkeborg en hann fékk ekki margar mínútur með danska félaginu og var samningi hans rift nýlega. Hann var á sínum tíma í herbúðum Everton á Englandi og var fyrirliði U21-landsliðsins.

Þetta var tilkynnt á fréttamannafundi sem nú stendur yfir í Kaplakrika.

FH-ingar urðu síðast Íslandsmeistarar 2012 en undanfarin tvö ár hafa þeir hafnað í öðru sæti.

Viðtöl koma inn á síðuna á eftir.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.