Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   lau 04. febrúar 2023 14:26
Jóhann Þór Hólmgrímsson
England: Fyrrum Burnley menn hetjur í frábærum sigri Everton
Mynd: EPA

Everton 1 - 0 Arsenal
1-0 James Tarkowski ('60 )


Það var algjör draumabyrjun hjá Sean Dyche í stjóratíð sinni hjá Everton í dag en liðið gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Arsenal.

Everton var með yfirhöndina nánast allan leikinn en Dominic Calvert-Lewin var nálægt því að koma liðinu yfir í fyrri hálfleik en honum tókst ekki að setja stóru tánna í boltann.

Abdoulaye Doucoure hefði síðan átt að gera betur þegar hann átti slakan skalla úr dauðafæri. Ekkert mark var því skorað í fyrri hálfleik.

Eftir klukkutíma leik tókst hins vegar James Tarkowski að brjóta ísinn þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Dwight McNeil, báðir fyrrum leikmenn Burnley undir stjórn Dyche.

Arsenal menn fundu sig enganvegin í dag og fleiri mörk urðu ekki skoruð, frábær byrjun á ferli Dyche hjá Everton.

Manchester City hefur nú tækifæri til að minnka forskot Arsenal á toppnum niður í tvö stig með sigri á Tottenham á morgun.


Athugasemdir
banner
banner