Þýski markvörðurinn Loris Karius hefur rift lánssamningi sínum hjá Besiktas í Tyrklandi og er hann því aftur orðinn leikmaður Liverpool.
Karius hefur verið ósáttur hjá Besiktas undanfarna mánuði en hann hefur átt erfitt með að fá greidd laun sín hjá félaginu.
Karius hefur verið ósáttur hjá Besiktas undanfarna mánuði en hann hefur átt erfitt með að fá greidd laun sín hjá félaginu.
Karius gerði dýrkeypt mistök með Liverpool í úrslitaleik Meistaradeildarinnar árið 2018 og um sumarið fór hann til Besiktas á tveggja ára lánssamningi.
Í færslu á Instagram í dag segir Karius að hann hafi reynt að leysa málin hjá Besiktas en á endanum hafi hann neyðst til að segja upp samningnum.
Hinn 26 ára gamli Karius á tvö ár eftir af samningi sínum við Liverpool en afar líklegt þykir að hann verði seldur frá félaginu í sumar.
Athugasemdir