Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   þri 04. maí 2021 23:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Anke Preuss farin heim - Guðný á láni út leiktíðina
Mynd: Getty
Anke Preuss er farin til síns heima en henni hafði verið ætlað að verja mark Selfoss. Hún mun ekki verja mark liðsins í sumar.

Því miður fingurbrotnaði Anke nýlega og er frá vegna þeirra meiðsla næstu tvo mánuði eða svo.

Í staðinn var Guðný Geirsdóttir fengin á láni frá ÍBV, hún kemur á láni út leiktíðina.

Preuss var síðast á mála hjá sænska félaginu Vittsjö. Fyrir það var hún markvörður stórliðs Liverpool á Englandi og spilaði þar 23 leiki frá 2018 til ársins 2020.

Selfoss mætir Keflavík í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á morgun.
Athugasemdir
banner
banner
banner